Takk fyrir fantasíuna þína

Konur eiga allskonar kynferðislegar fantasíur þótt þær fari oft hljótt. Þessi síða er fyrsta skrefið að verkefni sem ætlað er að upphefja fantasíur og kynferðislegan hugarheim kvenna.

Hugmyndin er að íslenskar konur setji á blað fantasíusögurnar sem þær njóta í einrúmi hugans og langar til að deila með öðrum – nafnlaust. Valið verður úr sögunum og þær gefnar út í bók. Fantasíur eru alla jafna einkamál og því verður ekki hægt að rekja þær til sendanda. Ekki þarf að huga að stíl eða uppbyggingu að öðru leyti en að fantasíurnar séu heiðarlegar og hispurslausar frásagnir úr kvenlægum hugarheimi í smásagnastíl.

Hægt er að senda fantasíurnar í gegnum þessa síðu hér til vinstri, eða senda þær með pósti á: Sögur, Pósthólf 186, 121 Reykjavík. Tekið verður á móti sögum til 19. júní.

Það er bæði mikilvægt og skemmtilegt að íslenskar konur fái notið kynferðislegs efnis og fjölbreytileika þess á sínum forsendum – og því ekki að skapa það efni sjálfar? Það er einlæg ósk að sem flestar konur á öllum aldri deili með kynsystrum sínum leyndardómum sem bæta og krydda lífið. Vertu með.

Ábyrgðarmenn

Ritstjóri er Hildur Sverrisdóttir

Útgefandi er Forlagið

Hildur

Hildur er lögfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og öðlaðist lögmannsréttindi árið 2009. Hún er varaborgarfulltrúi og situr í umhverfis- og samgönguráði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Með laganámi starfaði hún sem framkvæmdastjóri V-dagsins gegn kynferðisbrotum og setti upp Píkusögur með alþingiskonum. Hildur er 33 ára og býr í Vesturbænum í Reykjavík.

Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við Hildi í netfangið:
hildur@fantasiur.is

Skilmálar

Vinsamlegast athugið að valið verður úr þeim fantasíum sem berast og þær birtar í bók þar sem þær verða prófarkalesnar og mögulega stílfærðar. Sögurnar sem berast og sem verða valdar í bókina munu alltaf vera nafnlausar og verða aldrei raktar til sendanda. Eftir sendingu eru sögurnar eign útgefanda og er áskilinn allur höfundarréttur, þar á meðal af öllu afleiddu efni.